
Frábært námskeið í WordPress sem er kjörið fyrir alla sem vilja koma sér upp eigin vef með litlum tilkostnaði.
WordPress er opinn hugbúnaður sem nýta má endurgjaldslaust og eitt vinsælasta vefumsjónarkerfið í heiminum í dag.
Rafræn kennslubók á ensku fylgir með.
Inntökuskilyrði
Þátttakendur þurfa að hafa góða almenna tölvukunnáttu.
Markmið
Að loknu námskeiði eiga nemendur að:
- geta sótt um lén á ISNIC
- geta sett upp WordPress vefumsjónarkerfið á hýsingu að eigin vali
- þekkja helstu eiginleika WordPress vefumsjónarkerfisins
- geta leitað eftir og sett upp sniðmát í WordPress vefumsjónarkerfinu
- geta unnið með færslur og síður í WordPress vefumsjónarkerfinu
- geta sett upp viðbætur (e. Plugins) í WordPress vefumsjónarkerfið
Viðfangsefni
Á námskeiðinu setja þátttakendur upp eigin vef frá grunni. Gert er ráð fyrir að þátttakendur sæki um sitt eigi lén eða notist við lén sem þeir kunna að eiga.
Þátttakendur geta nýtt fjölbreytta hýsingarkosti og fá kennslu og aðstoð við að uppsetningu á vefumsjónarkerfi.
Þátttakendur geta nýtt fjölbreytta hýsingarkosti og fá kennslu og aðstoð við að uppsetningu á vefumsjónarkerfi.
Athugið að fyrstu tvo tímanna verður farið í hýsingarmöguleika. Nemendur geta unnið á vefsvæði sem kennarinn leggur til.
Námsmat
Ekki eru lögð fyrir formleg próf en mikil áhersla er lögð á að leiðbeinandi og þátttakendur fari sem oftast yfir það sem hefur áunnist til að ýta undir stöðugar framfarir.
