Athugasemdir – Stillingar


Mikilvægt er að velja hvort á að leyfa notendum að setja inn athugasemdir (Leave a reply / Comment).

Athugasemdir leyfa gestum vefsíðu þinnar að hafa umræður við þig og einnig við hvert annað.
Þegar þú virkjar athugasemdir á síðu eða bloggfærslu, setur WordPress textabox á eftir innihaldi á síðu þar sem notendur geta sett inn athugasemdir sínar.
Ef notendum er leyft að setja inn athugasemdir er nauðsynlegt að stilla þannig að stjórnandi þurfi að samþykkja til að athugasemdir verði sýnilegar.
Það getur alltaf verið hætta á að einhverskonar ruslpóstur/„spam” fari inn.

Á mörgum vefjum er sleppt að hafa athugasemdakerfið (Discussion/ Comment) virkt. Vegna öryggis, þarflausra athugasemda og hættu á að fá vírusa.

Auðveldast er að byrja á því, þegar síða (page) / blogg (post) er sett upp,  að fara í Screen Options  haka af möguleikann á að fá athugasemdaglugga á síðurnar.

Wordpress comments

 

 

 

 

 

 

 

Ef athugasemdir eru komnar á síður eru þær teknar af með því að opna síðuna og haka af þennan valkost.

Ef almennt á ekki að leyfa athugasemdir er best að taka þennan valkost út með því að velja: Settings> Discussion.

settings comments