Leiðakerfi – Menu


Leiðakerfi/Menu, virkar sem yfirlitsval fyrir leiðakerfið á síðuna þína.Innbyggðir leiðakerfiseiginleikar í WordPress
gerir þér kleift að búa til þitt eigin leiðakerfi. Það er mismunandi eftir þema/theme hvað mörg leiðakerfi / Menu eru í boði.
Þegar wordpress er sett upp er algengt að búið sé að gera tvær síður, Home og About me.Eftir að hafa gert fleiri síður þarf að ákveða hvar þær eiga að birtast og tengja í þær.
Aðalleiðakerfið / Main menu er oft efst og hliðar leiðakerfi/Sidebar menu til hliðar. Sum þema bjóða upp á Menu í síðufæti / Footer.
Hliðar leiðakerfi/Sidebar menu og leiðakerfi í síðufæti/Footer menu  býr maður til í Widget – leiðakerfi/Custom Menu.

Hér er stjórnsíða fyrir leiðakerfi / menu. Hér hefur verið gert leiðakerfi/Menu sem nefnist leiðakerfi1 og valið sem aðalleiðakerfi/Main Menu.
Í þessu þema birtist leiðakerfið/Menu efst (nav bar). Síður er settar inn í leiðakerfið/Menu með því
að velja þær og velja: Add to Menu

Leiðakerfi MenuHér hafa nokkrar síður verið settar inn og takið eftir að bollakökur hafa verið dregnar til hliðar og verður við það undirsíða undir Eftirréttir.

Veljið Theme Location til að allt birtist á réttum stað.

Leiðakerfi Menu

Það er einnig hægt að velja Links (krækjur) og Categories (flokka af póstum) og búa til tengil inn í leiðarkerfið.