Greinar (e.Posts). WordPress er hannað sem bloggkerfi og posts er fyrir blogg/ póstfærslur. Kerfið flokkar bloggfærslur í tíma: mánuður, ár, ef notandi velur að láta skjalasafn birtast.
Bloggfærslur eru flokkaðar í flokka og merki (Catagories og tags). Það auðveldar notendum að finna skyldar greinar og efni. Allar greinar eru settar undir einn eða fleiri flokka. Áríðandi að skipuleggja flokka vel og ákveða hvað flokkar eiga að nefnast. Hægt að búa til yfirflokka og undirflokka með því að nota Parent. Að merkja greinar með merkjum(e.tags) setur grein í einn eða fleiri flokka. Merki (tags) – Merki virka svipað og flokkar nema ekki er hægt að hafa undir og yfirmerki.
Í flestum þemum er hægt að nota mynd sem krækjur inn á bloggfærslu. Til þess að kalla fram þá virkni þarf að velja Featured image og Format Image.
Að flokka t.d. matarblogg þá gætu flokkarnir verið: Forréttir, fiskur, kjöt, eftirréttir, …Ef þetta er ferilmappa væru flokkarnir t.d. grafísk hönnun, vörumerki, auglýsingar, myndbönd, …

Nýr póstur
Skrifið færsluna og veljið Format, Categories og Features Images.

