WordPress vefumsjónarkerfið er opinn hugbúnaður sem nýta má endurgjaldslaust. Hins vegar getur verið tekið gjald fyrir sértækt útlit (þema)og viðbætur.
Kerfið er hægt að nota til að setja upp heimasíður, fyrir byrjendur jafn sem lengra komna.
Kerfið er hægt að nota með því að skrá sig inn á wordpress.com eða sækja kerfið (WordPress.org) og setja upp á eigið vefsvæði.
Munurinn á WordPress.com eða WordPress.org?
WordPress.com – Kosturinn við WordPress.com er að það er auðvelt í uppsetningu og það þarf ekki að hafa aðgang að vefþjóni.
- Ókeypis WordPress kerfi og hýsing á wordpress.com
- Góð leið fyrir byrjendur til að læra að feta sig í nýju vefumsjónarkerfi
- Mikið notað fyrir bloggsíður og upplýsingavefi
- Notandi fær undirlénið [lén].wordpress.com, en hægt að kaupa .com lén fyrir lítið
- Valmöguleiki á viðbótum (e. plugins)ekki mikill
- Takmarkað úrval af stílsniðum, hægt er að kaupa sér aðgang að css breytingum
- Einfalt að flytja vefinn yfir á annað lén og/eða hýsingu síðar meri ef þörf krefur
- Auglýsingavefir ekki heimilaðir
WordPress.org
- WordPress CMS kerfi og frjáls hugbúnaður sem notandi setur sjálfur upp
- Notandi velur hýsingaraðila
- Eigið lén (isnic.is)
- Styður allar viðbætur (e. plugins)
- Sveigjanlegt og hægt að setja upp fyrir alla vefi
- Mikið úrval af stílsniðum
- Aðgangur á CSS breytingum
- Hentar nær öllum vefsíður
Þeir sem vilja eiga sitt eigið lén (url) þurfa að sækja um það á isnic.is en ISNIC – Internet á Íslandi hf. sér um skráningu léna undir landsléninu .is.
Notendur þurfa að geta sent vefumsjónarkefnið úr tölvunni sinni yfir á vefþjón t.d. með FTP (SFTP).
Útlit og viðbætur
WordPress notendur geta valið á milli margskonar útlitspakka (theme). Þúsundir valkosta er á mismunandi útliti (þema), bæði ókeypis og einnig útliti (þema) sem þarf að borga fyrir.
Hægt er að skipta um útlit (þema) án þess að innihald tapist. Notendur hafa þó nokkuð úrval til að breyta útliti í stjórnborði en ef þekking er á HTML og
CSS gerir það notandanum kleift m.a. að hanna sitt eigið útlit. Hægt er að sækja viðbætur sem bjóða upp úrval af áhugaverðum möguleikum.
